Vikulokin

 

Þær eru oft skemmtilegar myndirnar sem maður tekur óvart. Þarna er hann Davíð að berja saman einhverja magnaða og djúpa setningu í kollinum.

Það er með ólíkindum hvernig tíminn æðir áfram. Fróðir menn segja mér að það sé föstudagur á morgun. Veðurspáin er ekki góð og ég var kominn með hálgerðan kvíða yfir því hvað ég ætti af mér að gera. En til að koma í veg fyrir tilvistarangist, þá er ég búinn að berja saman eitthvað smá plan.

Eftir vinnu á morgun ætla ég að fara heim, laga til og þrífa. Ég ætla meira að segja að þrífa ofninn, enda búinn að kaupa forláta eitur til að úða inn í hann. Eftir það ætla ég bara að slappa af og horfa á eitthvað gott. Síðan er ég búinn að taka ákvörðun um að mála myndir fyrir Dyngjuna á laugardag og sunnudag. Nú styttist í ferðasumarið og ég verð að fylla á lagerinn minn. Helgin fer í þetta en svo ætla ég kannski að hjóla eitthvað smá ef það verður ekki undir núll gráðunum.

Núna ligg ég í sófanum og bíð eftir að það byrji húsfundur á Zoom. Langar rosalega til að bera upp einhver skrítin erindi um lykt, kusk í sameign eða reykingahóstann í gamla manninum í næsta stigagangi. En nú eru Pavel og Eyþór Arnalds að fara að rífast um hámarskhraða í Reykjavík og ég má ekki missa af því. Eyþór er æði, ég er viss um að hann er einhver gjörningur. Kannski er hann Banksy?

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap