Skissur og hjól
Einhverjar "Belgjarskissur" |
Ég er aðeins kominn í gang aftur að mála. Er búinn að vera að dunda við fjallið mitt með misjöfnum árangri. Það sem hefur aðalega verið að valda mér vandræðum er forgrunnurinn, en ég hef ekki haft þolinmæði í að hugsa hann neitt fyrirfram. Ég hef bara gert hann í hálfgerðu panikki. En ég held að ég sé búinn að finna út ca. hvernig ég vil hafa þetta. Á morgun ætla ég að reyna að mála eina sumar/haust mynd og svo sama mótíf að vetri til. Seinni myndin á eftir að steinliggja.
Núna er ég kominn í bælið og klukkan orðin 22:48. Ég skrapp með Þórði og drakk te í vinnunni hjá Iriju. Ætlaði að mála þegar ég kom heim en held mér veiti ekki af því að fara bara að sofa. Tók æfingu áðan; hjólaði litla Eyjafarðahringinn. Þetta voru 34 km. og ég var bara á ágætum tíma miðað við að ég var á púls 124- sem er rólegt. Veit ekki hvort ég hjóla á morgun, fer bara eftir því hvort ég verði í stuði. Ætla að ná 2 æfingum fyrir helgi. Ein verður brekkur og hin interval.
Ummæli