Sala á verkum og happdrættisvinningur!
Talibanar |
Þessi mynd hér að ofan hefur alltaf staðið mér nærri. Þegar ég málaði hana á sínum tíma var ég að æfa mig í að gera fígurur bara með pensli. Ég fann mynd af einhverjum Talibönum á sullaði þessu á blaðið. Það gekk hratt og átakalaust fyrir sig, enda bara hugsað sem skissa. En ég sá alltaf eitthvað við hana, og í staðinn fyrir henda henni ofaní kassa, þá endaði ég með að láta ramma hana inn. Síðan hefur hún alltaf hangið við rúmið mitt.
Ég var að tala við kunningja minn í dag og hann var að tala um hvað hann hefði alltaf viljað eignast hana. Ég var búinn að segja honum fyrir löngu að ég hefði selt hana. Það gerði ég vegna þess að ég tímdi ekki að láta hana. Í dag slysaðist ég svo til þess að segja honum að hún væri í minni eigu og hann bauð strax verð sem ég gat ekki hafnað.
Svo þegar ég var að verða sáttur við ákvörðunina þá fékk ég SMS frá Happdrætti Háskólans um að ég hefði unnið 20.000 kr. Það má því segja að ég hafi náð að raka mér saman smá aur þennan mánuðinn sem ég get notað í útivistardót fyrir fjallaferðina.
Annars höfum við það gott og það er búið að vera nóg að gera hjá okkur. Sundferðir, eldamennska, fótboltaæfingar ofl. Ég hjólaði upp á skíðasvæði áðan. Ætla ekki að hjóla mikið á morgun en taka æfingu heima. Eftir morgundaginn er ég kominn í 4 daga frí. Veður hefur verið stillt, sól og fallegt. Lofthitinn er eitthvað að þokast upp. Þetta er allt frekar dásamlegt.
Ummæli