Post race round-up!

Tók á leigu fínan bílaleigubíl sem ég gat sett hjólið í.

Jæja þá er maður búinn að prufa að keppa í hjólreiðum. Eins og með margt annað í lífinu, þá var þetta ekki jafn skelfilegt og maður hafði búist við. Kvöldið áður lá ég í bælinu og las einhverjar greinar og horfði á myndbönd með ráðleggingum og reyndi að átta mig á því hvernig ég ætti að leggja þetta upp. Ég veit s.s. ekki hvort það bjargaði miklu en ég gerði mér þó enn betur grein fyrir því hvað það skiptir miklu máli að finna sér hóp til að hanga í svo maður þurfi ekki að kljúfa vindinn sjálfur allan tímann. Með því getur maður sparað 25-50% orku.

Ég hafði ekki hugmynd um hvar ég ætti að koma mér fyrir í rásmarkinu og endaði með því að stilla mér upp einhversstaðar um miðjan hóp. Ég var að blaðra við Starra Heiðmars þegar allt í einu var ræst og þá hófst geðveikin. Startið var ótrúlega skemmtilegt og ég fór fljótlega að þoka mér framar og hjólaði utaná hópnum með vindinn í hliðina. Ég hélt mér rólegum að Geiteyjarströnd en þá fannst mér eins og ég væri kominn í hóp sem væri óþarflega hægur. Fimmhundruð metrum framar sá ég 4-5 stelpur sem hjóluðu saman og ég ákvað að reyna að hjóla þær uppi.

Það reyndist þrautinni þyngri og ég náði þeim ekki fyrr en við Geirastaði. Ég var því búinn að hjóla einn stóran hluta af hringnum og búinn að eyða töluvert mikilli orku. Ég hjólaði svo með þessum konum að Grímsstaðaöxlinni en stakk þær af í brekkunni. Eftir það hjólaði ég einn af mér en bilið í næstu menn var of langt. Vindurinn á afleggjaranum við Jarðböðin var rosalegur og þetta var eins og að hjóla á vegg. Niðurstaðan var 18 sæti af 100 og tíminn 1:27:00.

Þegar ég skoða úrslitin sé ég eina grúppu sem kom inn á 1:20:00 og ég þekki þar nokkra hjólara. Ég er eiginlega viss um að ég hefði getað hangið með þeim ef ég hefði verið aðeins graðari í byrjun. En ég er bara sáttur við niðurstöðuna og þetta var alveg hrikalega gaman. Nú er mig farið að langa til að skrá mig í fleiri keppnir en mér sýnist að það sé helst Tour de Ormurinn sem ég geti náð. Þá verð ég nýkominn úr 10 daga hálendisferð og það verður forvitnilegt að sjá hvernig það virkar sem undirbúningur.

En nú erum við börnin komin heim og allt búið að vera á fullu seinnipartinn í dag. Ég tók okkur til, keyrði til Akureyrar og kom öllu dótinu okkar og hjólinu upp í íbúð og setti í vél. Setti svo ferðahjólið út í bíl, skilaði bílaleigubílnum og hjólaði heim. Fór í búð, setti börnin í bað, setti í fleiri vélar, smurði nesti, setti börnin í bað og tók þau til fyrir skólann. Þegar ég verð búinn að kvitta undir þennan póst ætla ég svo að lesa fyrir þau og ætli ég komi mér svo ekki í bælið sjálfur. 

Ætla að reyna að ná nokkrum æfingum í vikunni. Ég hjólaði rúma 30 km í dag þannig ég hugsa að ég hvíli samt á morgun. Hendi inn einhverjum fréttum fljótlega.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap