Holy f#$k

Ástæðan fyrir því að ég er að blogga núna er sú að ég ligg í sófanum og get ekki staðið upp. Eurovision er í sjónvarpinu, fréttir búnar og ég búinn að skoða allt sem ég nenni að skoða á alnetinu. Það er ekkert annað að gera en að skrifa eitthvað. 

En ástæðan fyrir því að ég get ekki staðið upp er að ég tók brútal æfingu áðan. Tók skautasvellsbrekkuna 5x á mismunandi efforti og hraða- standandi og sitjandi á víxl. Fór síðan í sund og bakaði mig í heitasta pottinum, fór í sólbað, gufu og allan pakkann. Kom heim og grillaði gæsaborgara sem ég át með gráðostasósu, sultuðum rauðlauk, frönskum og öllu tilheyrandi og nú er ég bara off..... Vona að ég geti staðið upp eftir klukkara og málað eitthvað.

Á morgun ætla ég að taka efripartsæfingu, fara í sund og hafa það svo rólegt. Þriggja daga helgi framundan, afmæli hjá Slim og bara næsheit. En Eurovision skánar ekkert og er eiginlega bara skelfilegt. En ég vona að okkur gangi vel, Daði og co. er næs lið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap