Hjólakeppni um helgina
Uppi í Hlíðarfjalli |
**ég er búinn að reyna að setja myndir inn með færslunni en Blogger leyfir mér það ekki í augnablikinu. Prufa aftur á morgun
Nú styttist víst í hjólakeppnina sem ég hef verið að bíða eftir. Held að það verði ræst frá Jarðböðunum á laugardaginn klukkan níu sjarp. Ég get ekki sagt að ég hafi tekið neitt fullorðins æfingaprógram, en er þó búinn að reyna að hafa þetta fjölbreytt og ekki of mikið. Það helsta sem hefur vantað eru lengri túrar. Ég reyndar fór 50 km. á mánudaginn og þar af 40 án þess að stoppa neitt. Ég var bara að venja mig við að vera í hnakknum svona lengi og það var bara fínt. Í gær hjólaði ég upp á skíðahótel og var 20 mínútur frá Gleránni og upp. Þetta er besti tími sem ég hef verið á en ég var samt að passa mig á því að vera ekkert að ganga fram af mér. Svo er ég búinn að hjóla frekar mikið í bæjarstússi í dag þannig ég finn alveg smá þreytu í löppunum. Það verður gott að hvíla á morgun.
Gatli að setja upp hjólið hans Gulla |
Það var komið eitthvað gjökkt í framgaffalinn á hjólinu þannig að ég fór með það til Gunnars Atla. Hann og Gulli rakari voru að setja saman nýtt hjól fyrir Gulla, einhverja geðveika græju. Gatli er að flytja inn Ridley hjól og selja þau út um skúr í garðinum, alltaf eitthvað í gangi á þeim bænum. Það var fínt að spjalla aðeins við þessa reynslubolta og fá ráð fyrir keppnina. Það helsta var bara að hægja aldrei á sér og hafa alltaf augun opin svo maður krassi ekki. Það væri nú alveg eftir því að ég ætti eftir að slasa mig í þessu rugli. En annars lítið títt; fór í Skíðaþjónustuna og keypti mér nýjan hjálm. Ég ætti innleggsnótu og splæsti í einhvern götuhjólahjálm sem kostar 18 þúsund kall. Gamli Specialized hjálmurinn minn er síðan 2011 og því örugglega löngu orðinn úreltur skv. öllum stöðlum.
Ég skrifa ábyggilega eitthvað hérna inn um keppnina ef ég lifi hana af.
Ummæli