Börnin

Ein gömul og góð af Dagbjörtu Lóu að borða morgunmat í sveitinni.

Stundum hef ég ætlað að vera duglegri að skrifa niður eitthvað sniðugt sem börnin mín eru að tala um. En það gleymist nú yfirleitt alltaf. Í dag fóru samt skemmtilegar samræður fram við matarborðið og voru þær eitthvað á þessa leið:

Brynleifur, Árni og Patti (vinir hans) ætla að eiga heima saman í húsbíl þegar þeir verða stórir. Patti ætlar að vinna á gröfu, Árni ætlar að starfa sem náttúrufræðingur en Brynleifur ætlar að vera heimavinnandi og elda mat handa þeim. Þetta er eitthvað sem þeir eru búnir að vera að spá í mjög lengi og er alltaf í vinnslu. 

Í dag kom nýr vinkill á þetta, því þeir ætla að eignast fleiri bíla og fara saman í ferðalag til Svíþjóðar. Brynleifur spurði mig hvort ég teldi að afi og amma í Svíþjóð yrðu en á lífi eftir 10 ár? Ég sagði honum að ég ætlaði nú rétt að vona það. Hann hafði stungið upp á því við strákana að þeir kæmu við hjá þeim á ferðalegi sínu um Svíþjóð. Árna fannst það ekki góð hugmynd en þegar Brynleifur var búinn að segja honum að þau ættu bæði plastsundlaug og heitan pott, þá snérist honum hugur.

Dagbjört ræddi um að hún ætlaði að eiga pallbíl þegar hún verður stór. Hún ætlar að tjalda á pallinum og þannig verður hún komin með húsbíl. Þar ætlar hún að geyma dótið sitt og leika sér. Stundum sakna ég þess að vera ekki barn.

Að lokum var ég ræða við Dagbjörtu um ferðina sem við ætlum að fara til Reykjavíkur um Páskana. Það er búið að vera á óskalistanum hjá henni og Brynleifi að fara með flugvél og ég sagðist skyldi ræða það við ömmu hennar (hún ætlar með). Þá sagði Dagbjört:

"Ef ég væri amma og hún væri ég, þá myndi ég segja að við færum með flugvél, því amma vill alltaf gera það sem okkur finnst skemmtilegast." 

Ást og friður

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap