Skíði
Skíðaferð í Reykjahlíðarheiði 2013. |
Nú er orðið langt um liðið síðan ég hef farið á gönguskíði. Þessi baktería hefur alveg legið í dvala hjá mér og ég var eiginlega búinn að ákveða að þessum kafla væri bara lokið. Ég var búinn að ákveða að fara með gönguskíðadótið mitt (sem eru brautarskíði) og leggja þau inn í Skíðaþjónustuna og nota innleggið upp í hjól fyrir Lóu. Guðrún fékk þau í láni fyrir vinkonu sína í fyrra og ég held að þau séu þar.
En síðustu daga hef ég aðeins verið að skoða utanbrautargönguskíði og verið að velta því fyrir mér hvort það gæti ekki verið gaman að fara í einhverjar styttri ferðir og jafnvel gista í skálum. Ég hef því ákveðið að reyna að ná einhverjum stuttum ferðum það sem eftir lifir vetrar og ef mér finnst þetta skemmtilegt skoða ég að kaupa mér breiðar skíði með stálkönntum og fjallaskó fyrir næsta vetur.
Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag bjallaði ég í Þórð og spurði hvort hann væri ekki spenntur að kíkja eitthvað með mér helgina 16.- 17. janúar og hann var spenntur fyrir því. Ef veðurspá verður góð erum við að spá í að fara í Svartárkot og ganga í Suðurárbotna og gista í skála FFA, Botna. Ég held ég eigi í rauninni allt sem ég þarf í þetta nema ég þarf kannski að kaupa mér eina samanbrjótanlega skóflu, svona ef við þurfum að grafa okkur í fönn.
Kosturinn við þetta áhugamál er að ég get notað flest það dót sem ég nota í hjólaferðalögum og með þessu móti getur maður farið í ævintýraferðir allt árið. Nú er bara að vona að þetta gangi allt vel og maður kolfalli fyrir þessu.
Ummæli