Skíðaferðin mikla.... að mestu án skíða

 

Menn og hundur nálgast Svartárkot

Þá erum við Þórður búnir að ganga í Suðurárbotna á skíðum. Við lögðum upp frá Svartárkoti á laugardaginn kl. 12.30. Við vorum svolítið lengi fyrstu kílómetrana, alltaf að stoppa og laga okkur eitthvað til og snjórinn var erfiður fyrir skíðin. Það hlóðst svo mikið undir þau að ég reif þau af mér eftir rúma 4 km. og skildi þau eftir. Ég var á mjóum brautarskíðum og þau voru farin að velta undir mér og ég alltaf að misstíga mig. Ég fer ekki aftur á þessum skíðum í svona ferð.

Við komum á Stóruflesju um kaffileitið og það var orðið nokkuð ljóst að við myndum ekki ná í Botna fyrir myrkum. Þórður skipti yfir í gönguskó, plástraði á sér tærnar og við fengum okkur smá næringu. Eftir þetta gekk ferðin býsna vel þrátt fyrir að við ættum stundum erfitt með að átta okkur á hvar slóðin lá. Guð sé lof fyrir GPS tækið- við hefðum aldrei.... aldrei fundið kofann án þess. En ég ætla að skrifa hér niður nokkra punkta til minnis og hvað maður lærði.

Punktar:

Ferðin var hrikalega skemmtileg og vinnur frekar á heldur en hitt. Mig langar að skella mér aftur fljótlega í eitthvað svipað. Ég er búinn að viðra það við Davíð að koma með mér og Þórði í Lamba á Glerárdal.

Ég ætla aldrei aftur á brautarskíðum í svona ferð og mig langar að prufa ferðaskíði með stífum hlýjum ferðaskóm. Ég er þó ekki ennþá sannfærður um að það henti mér og að ég myndi nota þau mikið. Kannski væru bara góðar þrúgur málið fyrir mig.

Í Botna átum við pasta carbonara sem við elduðum frá grunni. Þetta var óþarflega mikið tilstand í svona vetrarferð, uppvask og þrif. Næst ætla ég að leggja áherslu á að taka með eitthvað sem er fljótlegt að græja og krefst ekki mikils uppvasks.

Ég var búinn að spá í að sleppa því að taka með mér GPS tæki í hjólaferðina á hálendið í sumar. Eftir þessa ferð áttaði ég mig á því að ég verð að fá tækið lánað hjá Þórði og læra á það. Þetta var lifesaver og sími kemur ekki í staðinn.

Og hér eru atriði sem maður gleymdi eða þarf að laga:

  • Höfuðljós
  • Inniskó/þykka sokka fyrir kofann
  • Ég verð að kaupa almennilega vettlinga
  • Áttavita (finna minn)
  • Vasahníf 
  • Skóflu
  • Einfaldari matur
Man s.s. ekki meira í bili en bæti bara á listann ef það dúkkar upp





Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap