Fjölskylduhelgi

 

Morgunmatur með ömmu um helgina. Brynleifur alltaf fyndinn.

Við börnin áttum frábæra helgi, án þess þó að vera með eitthvað stíft plan. Amma kom í heimsókn á föstudaginn og bauð öllum á Black Box, sem var alveg geggjað. Við horfðum á skaupið, á teiknimynd og fórum aðeins út með sleða þegar veðrinu slotaði á laugardaginn. 

Eftir að amma var farin á laugardaginn buðum við Patta í kvöldmat og hann kom svo aftur til okkar í dag (sunnudag). Við fórum í sund, keyptum langlokur og svo fengu þeir að spila Minecraft. Brynleifur sagði mér svo reyndar undir kvöld að hann þyrfti að læra helling, þannig við urðum að mokast í gegnum það. Já og ég tókn niður allt skraut og tók til.

Ég nenni nú ekki að hafa þetta lengra, en svo ég gleymi því ekki ætla ég að skrifa niður hérna hvað Dagbjört Lóa borðaði á föstudaginn:

  • 2 smáborgarar,
  • Slatti af frönskum með kokteil,
  • 2 pizzasneiðar,
  • Snakk með ostasósu,
  • Appelsín,
  • Eplasvali,
  • Þristur og 
  • Skyr í eftirmat
Margur er knár þótt hann sé smár!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap