Tannpína
Ef fjármálin líta þokkalega út, maður er laus við liðverki, ekki með útbrot og bólur, er í sæmilegu formi og líður ágætlega andlega- þá kemur bara eitthvað annað í staðinn. Lífið er eins og golf, þegar maður er að pútta vel þá er dræverinn út á túni og þegar maður drævar vel, þá er járnaspilið í klessu. Það er ágætt að minna sig á þetta reglulega og reyna bara að vera þokkalega sáttur þegar allt er ca. í lagi. Lífið er eilíf barátta og endalaust kapphlaup um að reyna að halda sem flestum strengjum stilltum.
Ég hef það s.s. fínt að öllu leiti nema að það er einhver djöfullinn að mér í kjaftinum. Fyrir nákvæmlega 2 árum, þegar ég var að leggja af stað í hina árlegu gæsaferð Sperðlanna (eins og núna), þá fékk ég tannpínu og það gekk mjög illa að komast fyrir það. Ég endaði á sýkla- og verkjalyfjum og þurfti ef ég man rétt 5 heimsóknir til tannlæknis. Nú er þetta helvíti komið aftur og það á sama stað. Samt á að vera búið að rótarfylla þessa tönn í drasl og enginn skilur neitt. Það eru jafnvel einhverjar kenningar um að þetta geti verið kinnholuvandamál og að ég þurfi að fara í röntgenmyndatöku. Mér finnst það samt ekki alveg passa því að ég finn svo oft fyrir þessu þegar ég er búinn að vera að borða. En það þýðir víst ekki að væla yfir þessu, nema þá helst yfir öllum peningunum sem þetta kostar. Ég læt kannski bara taka tönnina við öxl. Læt Þórð bara gera það á verkstæðinu í Kaktus.
Annars er maður að reyna að gíra sig í þessa aðra bylgju af COVID. Við höfum það s.s. gott hérna fyrir norðan og það er allavega jákvætt að það sé hægt að halda skólum opnum ennþá. En þetta tekur samt toll af manni andlega. Nettur klostrófóbikk fílingur og deyfð sem hellist yfir mann. Ræktin lokuð og maður er að bisa við að gera æfingar í stofunni. Veðurstpáin er reyndar góð fyrir vikuna og kannski að maður nái að skella sér í einn hjólatúr.
Ég pantaði nagladekk undir Pugginn á laugardaginn og ég fékk póst frá Bike 24 í dag um að þau væru farin af stað!! Það má því alveg fara að snjóa mín vegna fljótlega. Nú er bara að bíða eftir að maður heyri í Markinu með afturgrindina og stýristöskuna. Ég hef nú samt á tilfinningunni að ég muni ekki ná að fara í neinar ferðir fyrir veturinn. En maður heldur þá bara áfram að nördast og skoðar búnað og skipuleggur komandi sumar.
Ummæli