Heimaliggjandi húspabbi

Útsýnið úr bælinu í morgun

Í dag er ég heimaliggjandi. Tannlæknirinn ávísaði á mig sýklalyfjum í gær og ég er kominn 3 töflur inn í kúrinn. Í gærkvöldi var ég viss um að eitthvað væri farið að gerast. Ég vaknaði svo með mun verri verk í morgun, sem reyndar var allt öðruvísi en verkurinn sem ég er búinn að vera með. Þetta kom og fór en nú var þetta aumara og stöðugur verkur. Ég veit ekkert hvað er að gerast en ímynda mér að ef þetta hafi verið sýking þá sé farið að létta á einhverri pressu og því finni ég verk.

Ég ætlaði í vinnuna en eftir að hafa étið morgunmat, sýklalyf og slatta af verkjalyfjum ákvað ég að leggjast bara fyrir aftur. Verkurinn hefur minnkað en ég er þungur í hausnum og með hausverk. Ég er að reyna að horfa á einhverja þætti en á erfitt með að einbeita mér. Mér finnst kaffi ekki einu sinni spennandi kostur, þá er eitthvað að. Ef ég verð ennþá slæmur á morgun held ég að tannlæknirinn ætli að mynda mig og kannski rífa úr eina fyllingu og skoða.

Í gær tók ég smá rispu í að hengja upp myndir og dádýrahorn- og á mánudaginn hjálpaði Þórður mér að setja niður þessa þrjá þröskulda sem höfðu verið að bíða hérna á kanntinum. Nú á ég bara eftir að hengja upp eitt ljós, ganga frá útigrillinu og koma smíðadótinu fyrir í geymsluna. Ég reyndar fékk þá flugu í höfuðið að rífa efri eldhússkápana niður öðrumegin og setja upp opnar hillur. Já og mála grænu flísarnar og þannig létta aðeins á eldhúsinu og opna það meira. Þó þessi sixties innrétting sé heillandi af mörgu leiti verður maður fljótt þreyttur á henni.

Við strákarnir urðum að hætta við gæsaveiðiferðina enda þetta covid ástand ekki alveg að gera sig. Helgin er því óskrifað blað en kannski maður kíki eitthvað í gæs hérna fyrir norðan ef maður verður orðinn skárri af þessum veikindum. Svo erum við Sperðlarnir að spá í að spila póker á netinu á laugardagskvöldið. 

Það eina jákvæða við að sleppa gæsaferðinni er að nú mun ég ná afmælinu hans Brynleifs á sunnudaginn. Það verður smá fjölskylduveisla með nánustu ættingjum. 

Var að kíkja á tracking númerið á nagladekkjunum mínum og þau virðast vera í Frankfurt. Póstflutningar eru ekki alveg á fullu þessa dagana og maður veit ekkert hvenær þetta skilar sér. Æi ég held ég ætti bara að leggja mig núna

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap