Fjallaferð næsta sumar

 Ég er búinn að vera að dusta rykið af pælingum fyrir hálendisferð næsta sumar. Ég á reyndar eftir að sjá að ég nái að fjármagna það sem mig vantar upp á búnaðinn. Ber þar helst að nefna; sólarpanel til að hlaða rafmagnsdótið, alvöru tjald og prímus. 

En ég er samt búinn að henda upp dagleiðum með byrjun á Akureyri og ég set þetta reyndar þannig upp að í lok hverrar dagleiðar kæmist ég næstum alltaf í skála. Undantekning er Hólsgerði/Úlfá á heimleið. Það að komast í skála (ef allt gengur upp) róar mann aðeins og ef það gerir sturlað veður er allar líkur á að manni yrði bjargað í hús.

En allavega, svona er planið núna:

  1. Sörlastaðir
  2. Suðurárbotnar
  3. Dyngjufjalladalur
  4. Dreki
  5. Kistufell
  6. Nýidalur
  7. Laugafell
  8. Hólsgerði/Úlfá
  9. Akureyri
Ég ætla fljótlega að reikna vegalengdirnar og skoða hvort maður tæki sér einn eða tvo daga til að skoða eitthvað eða ganga á fjöll á leiðinni. Já og svo ætla ég að bera þetta undir einhverjar fjallageitur sem þekkja leiðirnar til að vita hvort þetta sé nokkuð óraunhæft.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði