Slugs

Puggurinn að skoða skógarslóða í Kjarna.

Það ætti að fara að taka af mér réttindin til að blogga. Hér gerist ekkert af viti. En ég held að það boði s.s. bara gott. Ég hef það fínt, tel mig vera í ágætis jafnvægi og hef oft verið nær því að fremja hrikalegt fjöldamorð í verslunarmiðstöð.

Ég hef reyndar ekkert komist að hjóla í vikunni og finnst það reyndar frekar slæmt. Hef reyndar svolítið á tilfinningunni að hjóla-seasonið sé á enda, því miður- veðurspáin lítur bara þannig út. En ég er búinn að fara í ræktina 3var og ætla svo að skella mér á morgun aftur ÍMS. 

En ég er ánægður með nýja hjólið og það er í rauninni upplifun að prufa fatbike í fyrsta skipti. Hafa verður í huga að þetta er ferðahjól með stálstelli og því ekki það léttasta sem hægt er að fá í fatbike- línunni. Samt sem áður fannst mér ég komast ágætlega áfram á malbiki og hjólið bara nokkuð sprækt. Eins og lög gera ráð fyrir er meiru hvinur og viðnám í dekkjunum og maður finnur það alveg í stýrinu. En þegar maður er að krúsa á svona hjóli þá á maður líka bara að vera svolítið slakur og njóta.

Þegar maður hjólaði svo út á möl, sand, gras og drullu, þá fór hjólið fyrst að skína og maður fattaði til hvers guð skapaði það. Hjólið er ekki með dempara en dekkin éta samt allar ójöfnur og ég varð í rauninni furðulostinn þegar ég sigldi yfir stórgrýti á vegagerðarkafla án þess að hægja nokkuð á mér. Víður gripflöturinn á dekkjunum gerir líka það að verkum að maður getur klifrað ótrúlega brattar malabrekkur án þess að grípa spól. Ég hjólaði upp Spítalastíginn og efsti kaflinn í honum er alveg veggbrattur með möl og Puggurinn át þetta. Ég er ekki viss um að ég hefði haft mig upp á gamla fjallahjólinu mínu.

Nú er bara lokahnykkurinn eftir varðandi að græja sig upp fyrir veturinn og ég bíð ennþá eftir að fá afturgrindina fyrir töskurnar mínar og stýristöskuna. Ég hugsa að ég panti svo nagladekk og afturljós frá Bike 24 í þýskalandi. Helvítis dekkin eru reyndar dýrari en ég bjóst við en það verður ekki hjá því komist að vera á nöglum. Og þó ég hafi sagt það áðan að ég óttist að hjólaseasonið sé búið, þá lifi ég nú en í voninni að geta farið einhverjar stuttar ferðir á Puggnum. 

Æfingar og mataræði síðustu vikna skiluðu sér í því að ég var dottinn niður í 67,4 kg. fyrir viku síðan og ég held að ég hafi ekki verið svona léttur síðan fyrir fermingu. En það er allt í lagi, ég er helvíti fínu formi og sterkur. Mataræðið hjá mér upp á síðkastið hefur að mestu samanastaðið af grænmeti. Í gær keypti ég reyndar grillkjöt og pylsur og er það fyrsta kjötið sem ég kaupi í ábyggilega 3-4 vikur. Hef fílað þetta býsna vel en ég hef reyndar verið að slaka á millimálum og kexi. Ég verð að laga það, sérstaklega í ljósi þess að lengri hjólatúrar eru að líða undir lok í bili.

Annars er ég að fara með börnin í sveitina um helgina og kannski á gæs. Reyni að senda fréttir af því í næstu viku.

.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap