Keypti óvart hjól

Surley Pugsley flokkast sem Extreme Expedition bike

Ég var búinn að skrifa um það hér um daginn að ég væri að fara að fá mér nýtt ferða- og samgöngutæki fyrir veturinn. Ég var búinn að reyna og reyna að ná einhverjum upplýsingum úr Markinu í Reykjavík og frá verksmiðjunum í USA en fékk aldrei nein svör. Á endanum náði ég í einhvern gaur í Markinu sem sagðist halda að eitt eintak væri til. Ég var búinn að tékka á þvá sjálfur og var viss um að þetta væri því vitleysa. Hann spurði hvort hann ætti að panta það ef hann gæti og ég sagði bara já já út í loftið.

Viku síðar hringir hann í mig spyr hvort hann eigi að senda mér hjólið norður!!! Ég var búinn að gera aðrar ráðstafanir og var eiginlega búinn að slá hálendisferð næsta sumars út af borðinu. Ætlaði bara að dytta að hinu hjólinu mínu, kaupa nýjan hnakk og gírskiptingu og stefna á frekari malbiksferðir. En núna er ég orðinn býsna spenntur og er viss um að gripurinn nýtist mér vel hér í snjónum í vetur. Ég er að panta á hjólið afturgrind fyrir töskurnar mínar, stýristösku fyrir síma, veski og smádót og svo þarf ég nagladekk og ljós.

Ég hlakka mikið til að fá gripinn í hendurnar og hendi ábyggilega inn einhverju bloggi þegar ég hef tekið fyrsta snúninginn á því.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap