Dagbók númer eitthvað

Af okkur er allt gott að frétta. Börnin eru hjá mér og Brynleifur hefur ekki enn farið í skólann í þessari viku (það er miðvikudagur). Við bíðum eftir niðurstöðu úr sýnatökum hjá kennurunum og að öllum líkindum fer hann í skólann á morgu. Við erum búnir að vera að læra undir samræmt próf í stærðfræði en það er búið að fresta því.

Ég bíð ennþá eftir að fá grind aftan á Pugginn minn og tösku á stýrið. Og ég bíð líka eftir því að fá útborgað til að sjá hvernig þessi mánuður kemur út. Ég þori ekki að panta mér nagladekk fyrr en ég hef borgað reikninga og tekið stöðuna. Ég vona að ég geti nú farið að gera hjólið vetrarklárt sem fyrst, maður iðar í skinninu eins og barn að bíða eftir jólunum.

Vinnan gengur bara ágætlega og ég hef verið að ýta nokkrum verkefnum á flot sem hafa verið strand í nokkurn tíma. En svo er ég líka með hangandi yfir mér stór verkefni sem verða mjög krefjandi og ég þarf að fara að setja hausinn undir mig. Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpu er það stærsta og er það í fyrsta skipti sem þetta er gert hér á landi.

Ég var að fá veggfestingar fyrir götuhjólið mitt sem ég ætla að hengja upp á vegg í stofunni. Þórður er að koma hérna á eftir og ég ætla að nota tækifærið og hengja upp nokkrar myndir og svo koma upp dádýrshornum fyrir ofan rúmið mitt. Maður er búinn að búa hérna hálft ár svo það er ekki seinna vænna en að fara að klára þessi síðustu handtök.

Ég hef verið að gera æfingar heima upp á síðkastið. Eftir smitið í Lundarskóla vildi ég bíða í allavega viku með að fara í ræktina og sjá hvort þetta næði einhverri útbreiðslu hérna í bænum. Ég hef reyndar grun um að þetta hafi sloppið ótrúlega vel en þangað til að það er alveg víst geri ég bara æfingar heim. Armbeygjur, axlapressur með bjöllu, gobblet squat, magaæfingar  og armkreppur. Rúlla 3-4 umferðir í gegnum þetta á dag og reyni að byggja upp smá farmers strength.

Matur hefur verið í hálfgerðu ruglu hjá mér miðað við hvernig ég vil hafa þetta. Grænmetisátið hefur minnkað miðað við síðustu vikur en á móti kemur að ég hef helst verið að borða gæsakjöt. Ég og Þórður gerðum gæsahamborgara í gær og þeir voru alveg drullu-góðir. Og svo eigum við helling af gæsapylsum í frosti sem líka eru fínar. Djöfull er ég að verða svangur að skrifa um þetta.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap