Nýtt ævintýri eða alger dauði

Ferðaplanið fyrir Austfirði

Jæja ég er búinn að átta mig á því að það þýðir ekki að sitja með hendurnar uppi í rassgatinu á sér allt sumarfríið. Þó að hjólaferðir um hálendið og til útlanda hafi farið út um þúfur, þá verður maður bara að finna sér eitthvað annað að gera. 

Ég er að fara að vinna í Reykjavík í næstu viku og þegar því er lokið ætla ég að taka strætó á Höfn í Hornafirði og hjóla svo austur fyrir land- heim í Mývó. Þetta getur orðið allt frá því að vera frábært út í það að vera hreinasti djöfulsinns viðbjóður. 

Ég er búinn að redda mér tjaldi og það var alltaf planið að nýta það sem mest en það er líka freistandi að panta einhverja gistingu á leiðinni. Komast í góða sturtu og sofa í góðu rúmi. En ef ég geri það er það fljótt að telja og ég ætla að reyna að hafa þetta eins ódýrt og kostur er.

Nú þarf ég að fara að drífa mig í að fara yfir listann frá því ég fór í hjólaferðina til Svíþjóðar og uppfæra hann miðað við íslenskar aðstæður. Ég fæ lánað tjald en þarf að kaupa mér svefnpoka. Ég held að það verði ekki heldur umflúið að kaupa regnbuxur. Þó það sleppi yfirleitt erlendis að vera bara í hjólabuxum eða stuttbuxum í rigningu gegnir öðru máli hér. 

Það er skrítið að vera búinn að setja niður svona hjólaferð fyrir sig en hlakka ekki neitt til. Ég hef keyrt þetta margoft og ég nenni þessu varla. En ég held að þegar maður verði kominn af stað verði þetta alveg magnað. Ég er búinn að setja þetta gróflega niður svona:

Dagur 1: Höfn – Álftafjörður 75 km
Dagur 2: Álftafjörður – Karlsstaðir (Havarí)  67 km
Dagur 3: Karlsstaðir – Reyðafjörður 78 km
Dagur 4: Reyðafjörður – Skjöldólfsstaðir 85 km
Dagur 5: Skjöldólfsstaðir – Grímsstaðir á Fjöllum 80 km
Dagur 6: Grímsstaðir – Vagnbrekka 50 km
Samtals = 435 km.

Ég held að þetta séu hæfilegar dagleiðir í svona ferðalagi á Íslandi. Ef aðstæður væru mjög góðar væri sjálfsagt að fara mun lengra en það er ekki á vísan að róa. Ef það verður t.d. frábært veður fyrsta daginn væri freistandi að fara allaleið á Djúpavog og gista þar. En maður veit aldrei og sterkur vindur og rigning í andlitið getur gert manni lífið leitt.

Annars er þessi vika búin að vera fín. Ég hjólaði 80 km á sunnudaginn, fór í ræktina á mánudag og þriðjudag og hjólaði 40 km í gær á háu tempói. Mig langar að æfa í dag en ég ætla að pína mig til að vera í pásu. Dunda mér heima og taka mig til fyrir þessa ferð.

Ummæli

JóJó sagði…
Ekki gleyma bláberjum og túnfisk
Bjarni sagði…
AÐ sjálfsögðu ekki!!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap