Gott að frétta
Við Lóa erum voðalega ánægð með herbergið hennar. Nú vantar bara fallega stóra mynd á bleika vegginn. |
Ég hef ekki verið duglegur að blogga og hef heldur ekki verið að mála. Ætli maður sé ekki bara að fá einhverja útrás fyrir sköpunina með því að koma sér fyrir. Kaupa gluggatjöld, velja ljós, setja upp hillur og síðast en ekki síst; fylla allt af pottaplöntum Veit ekki afhverju þetta helltist yfir mig en ég er að verða voðalegur plöntuperri.
En annars er ég bara hamingjusamur á nýjum stað, bæði til húsa og í lífinu sjálfu. Það eina sem vantar er að komast í ræktina og sund. En maður fer út að hlaupa og hjóla og reynir að gera einhverjar smá armbeygjur heima. Maður getur ekki kvartað.
Ummæli