Hlaupapása
Nú hef ég ekki komsti út að hlaupa í nokkra daga. Ég hef verið gjörsamlega á hvolfi í flutningum og sit nú hérna í nýju íbúðinni og allt er gjörsamlega á hvolfi. Í augnablikinu lítur þetta út fyrir að vera margra daga verk af heiðarlegri vinnu að koma þessu öllu í gott horf. En maður er nú oft fljótari en maður heldur þegar maður er kominn af stað. Og svo er þetta líka svolítið gaman.
Það sem tefur mig aðeins er að ég var bara rétt að fá gólfefni á baðið í dag og því er ég með mitt herbergi undirlagt í smíðadóti. Það á s.s. eftir að leggja á blaðið og smíða gólflista. Annars á ég eftir að klára að skipta út innstungum og ljósarofum, hengja upp ljós og festa upp gardínur og myndir. Í augnablikinu er það samt eins og fjarlægjur draumur að gera það síðastnefnda. En það þýðir víst ekki að væla.
Ég vona að ég geti komist eitthvað út að hlaupa í dag. Kannski læt ég börnin hjóla og hleyp á eftir þeim. En það verður þá bara mjög stutt eftir þetta bakslag sem kom í þetta.

Ummæli