Hlaupadagbók V

Hlaup: 5

Dagsetning: 02.04.2020

Tegund: "Langt"

Leið: Frá Kringlumýri, að Pálmholti, stíginn að Bónus og þaðan Dalsbraut í Kringlumýri. Smá auka skokk niður á Byggðarveg, upp á Mýrarveg, Kambsmýri og heim.

Gír: Var í rauninni bara fínn sko- en eins og síðast fékk ég samt debunk fíling í lokin og var orðinn bensínlaus. Það að fá sykurfall við ekki meiri áreynslu þýðir einungis það að ég er að éta of mikið rusl.

Vegalengd: 7 km.

Samtala: 26 km.

Annað: Það voru fáir á ferli enda búið að snjóa þónokkuð og ég fór seint. Sé að margir eru að skoða bloggið þessi dægrin og ég velti því fyrir mér hvort það séu COVID-19 áhrif?

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Bikarmót #1 - 2023 - Recap

Negri í Þistilfirði