Hjólaferð og meinlætalíf

Ég skellti mér í fyrstu hjólaferð ársins á racer-num í fyrradag og var bara nokkuð ánægður með mig. Ég hjólaði fram í Kristnes og til baka og tók þetta á sæmilegu efforti. Leið bara ljómandi vel og var ekkert eftir mig, hvorki í rassinum né fótunum. Ég held ég fari að hjóla aðeins meira aftur þó ég reyni kannski eitthvað að halda áfram að skokka líka.

Ég tók enga æfingu í gær enda var ég að koma öllu í stand hérna í íbúðinni. Náði að hengja upp sjónvarpið, setja saman sófann og ganga eitthvað frá. Nú er þetta loksins farið að líkjast mannabústað. Í dag þarf ég að koma ægilegu magni af pappakössum og dóti á gámasvæðið. Þórður kemur með kerru og í staðinn ætla ég að hjálpa honum að flytja smíðadót og hefilbekk í nýju aðstöðuna.

Fyrir flutningana hafði ég einhvernveginn ekki reiknað með öðru en að nóg pláss yrði hér fyrir allt dótið okkar. Mér fannst Dalsgerðið hálf tómt þegar við fluttum út þaðan. En ég er eiginlega að lenda í mesta brasi við að koma þessu öllu sæmilega fyrir og skipuleggja þetta af einhverju viti. Við því er sennilega bara eitt ráð: losa sig við dót. Það gæti fallið vel að nýju pælingunni minni sem heitir Meinlætalíf 365.

Meinlætalíf er ákveðin pæling sem ég hef gengið með í kollinum og virkar í stuttu máli þannig, að í staðinn fyrir að fara í eitthvað átak, t.d. í mataræði þar sem fæðutegundir eru skornar út osfv, þá setji ég mér lífsreglur sem eru í takt við það sem gæti talist eðlilegt að gera til langs tíma. Þetta project á að taka til hluta sem hafa góð áhrif á heilsu, budduna og umhverfið og eru án allra öfga.

  1. Kaupa minna af fötum (reyndar enga flík á mig í 1 ár).
  2. Borða minni skammta og ekki milli mála (öll matvæli leyfð)
  3. Drekka minna kaffi 
  4. Reyna að borða meira úr plönturíkinu
  5. Losa mig við óþarfa drasl
  6. Spara pening
Þetta er nú svona það sem ég hef verið mest að spá í- þetta er ekki flókið. Ég ætla að setja þetta betur niður fyrir mig áður en ég byrja formlega og móta "reglurnar" aðeins betur. En núna ætla ég að drulla mér út að hjóla.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap