Vikulokin
Trek Stach 5 á 29" dekkjum sem eru 3" breið. Blæjuskriðdreki væri kannski réttnefni á þetta hjól. |
Þess vegna hef ég verið að skoða létt fjallahjól sem eru ekki fulldempuð. Helst Trek Stach 5. Þannig hjól myndi nýtast mér bæði til að grípa í styttri ferðir hérna innanbæjar og í skemmtiferðir, t.d. með börnunum í Kjarnaskóg- og svo gæti ég haft það á nöglum á veturnar og notað í samgöngur. Í þriðja lagi er hægt að kaupa á það töskur og græja það upp í styttri hálendisferðir. En með yfirstandandi flutninga og nýju íbúðina er kannski ekki besti tíminn til að kaupa það núna.
Í morgun þegar ég vaknaði fór ég reyndar að spá í að ef ég hefði ekki verið að fara til útlanda í sumarfríinu hefði maður kannski getað kýlt á þetta, sérstaklega ef maður myndi finna það notað (rökrétt pæling hefði verið að fara hvorki til útlanda né kaupa hjól- en OK). Ég sá fyrir mér í anda að maður hefði prufað að hjóla á því yfir í Fnjóskadal, Bárðadal, Suðurárbotna og svo niður í Grænavatn. Tveggja til þriggja daga ferð með léttan búnað. En svo reyndi ég að ýta frá mér þessum dellupælingum.
En svo þegar ég var búinn að ná þessu út úr kollinum á mér þá hringir Þolli í mig og við förum að spjalla um heima og geima eins og við gerum gjarnan. Að lokum kom hann með þá tillögu hvort hann ætti að skoða það að koma með fjallahjól til Íslands í sumar og við hefðum getað gert einhverja stutta ferð. Hell ye!! Ég sagði honum frá þessari hugmynd með Akureyri - Mývatn via Suðurárbotnar eða Heilagsdalur og hann er mjög spenntur. Sjáum til hvað setur.
Annars var vikan fín þrátt fyrir þessa fokking veiru sem er að setja allt á annan endann. Ég tók 4 æfingar í vikunni og fann ekki fyrir því. Ætli maður hafi ekki bara haft gott af því að breyta æfingaprógramminu í smá tíma. Ef ég man rétt þá rennur árskortið mitt út í lok maí og þá segi ég væntanlega skilið við Crossfit Hamar um sinn. Það er of mikið púsluspil fyrir mig að ferðast bæinn á enda til að mæta í tíma. Ég ætla að gefa Training for worriors sem er í KA heimilinu séns, vonandi hættir það ekki í bráð. Það verða þá 400 metrar fyrir mig að fara í ræktina.
Annars er ég bara góður. Búinn að laga til í dag, éta, lesa hanga á netinu og sit núna á Backpackers að drekka kaffi og moka í mig gulrótaköku með rjóma. Kostar 1000 kr! Besti díll í bænum, besta kaffihúsið í bænum. Að lokum finnst mér nauðsynlegt að koma því að að ég var að eyða peningum áðan. Keypti mér vettlinga á fokkings 13 þúsund krónur. Átti enga vettlinga lengur og spanderaði í vatnshelda Sealzkin hanska sem ég ætti að geta notað year around. Eitt af þessu sem maður réttlætir fyrir sér með bíllausa lífsstílnum. Sjáum hvernig þeir endast og hversu ánægður ég verð með þá.
Ást og friður!
Ummæli