Suðu Bjarni

Útsýnið úr Kringlumýrinni er stórkostlegt. Ég sit við stofugluggann tímunum sama.

Jæja nú sit ég hérna við stofugluggann í Kringlumýri 29, sem verður heimili mitt næsta mánuðinn. Ég skilaði Dalsgerðinu af mér í dag. Það var gleðilegt að sjá ung hjón með 3 lítil börn taka við af okkur. Börnin hlupu spennt um húsið að skoða og allt iðaði af lífi. Þau ætla að drífa sig í framkvæmdir og þetta á eftir að verða hörku fínt hjá þeim.

Það var samt skrítið að ganga í burtu frá húsinu lyklalaus en ég hugsaði strax "Don't look back, no regrets".. eitthvað í þá áttina. Mér fannst strax að nú væri ég að loka einhverjum kafla í mínu lífi og nýir tímar að hefjast. Ég fann frægu táknrænu hurðina lokast og það var eins og einhverju fargi væri af mér létt.

Eitt af því sem ég hef verið að glíma við í þessum flutningum (eins og alltaf þegar maður flytur) er allt þetta yfirþyrmandi drasl sem fylgir manni. Ég er búinn að fara 3 ferðir í sorpu og með slatta í Rauða krossinn, losa mig við kommóðu, sófa, rúm og sennilega barnarúm líka, en samt líður mér ennþá eins og ég sé að kafna í einhverju sem ég hef ekkert með að gera.

Ég á mér draum um að lifa lífi þar sem ég á bara 1 jakka, 2 skópör, ein jakkaföt osfv, enga ruslaskúffu sem er full og með enga kassa í geymslunni sem eru fullir af snúrum, gömlum myndavélum, verðlaunapeningum osfv..... er einhver að tengja? Mig langar að lifa ennþá einfaldara lífi og skera á heimskulegar tilfinningatengingar við efnislega hluti sem ég hef engin not fyrir. Að lifa þannig að ég gæti helst bara stokkið af stað, látið mig hverfa og ekki vantað neitt (ekki það að ég sé að hugsa um að stinga af).

En núna er ég s.s. að reyna að nýta þessa flutninga og andlegu uppsveifluna sem ég er í til þess að fara aftur í gegnum dótið mitt og herða mig enn frekar í að losa mig við óþarfa. Þessu fylgir mikið dilemma.... hvað á ég t.d. að gera við gömlu jakkafötin hans afa? Ég nota þetta ekkert lengur en get ekki heldur hugsað mér að henda þessu. Og það sem er skrítnast er að ég get allra síst hugsað mér að setja þetta í Rauða krossinn. Ég vil ekki sjá einhvern annan í þessu.

Uppfært í dag (mánudaginn 02.03.2020).

Veit ekki alveg hvert ég var að stefna með þessu suði hér að framan. Í gær hélt ég áfram að sortera og og náði ágætis árangri. Ég reyndar endaði á því að setja fötin hans afa aftur í skápinn. Róm var ekki byggð á einum degi.

En dagurinn í dag var mjög góður. Náði í börnin, við fórum í ræktina og svo í sund. Keyptum allskyns tegundir af skyri og fórum heim að borða snarl. Síðan var lesið og allir sofnuðu þreyttir og kátir.

Ég málaði í gær og birti kannski myndir af því fljótlega.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap