Sjálfskipuð sóttkví, bækur og

Ég stakk af með börnin í sveitina til afa og ömmu. Það eru aðeins meiri líkur á að maður nái að vinna eitthvað hérna. Var búinn að gera eina mislukkaða tilraun til að vinna í Kringlumýrinni en gat ekki tengt vinnutölvuna með hotspot og svo hafa börnin eiginlega ekki neitt við að vera þar. Það er alveg nóg challenge að fá vinnufrið í sveitinni og þar geta börnin þó farið út að leika eða horft á sjónvarpið.

Annars er ekki neitt að frétta nema maður er orðinn voðalega þreyttur á þessu ástandi strax. Það er helst að maður gleymi þessu rétt á meðan maður er að mála eða lesa. Var að klára Brúna yfir Tangagötuna eftir Eirík Örn Norðdahl í gær og fannst hún fín. Ég verð að viðurkenna að ég átti nú samt von á meiru. Mér fannst hún djöfull góð á köflum en mér fannst hún eiginlega bara fjara út. Maður hafði á tilfinningunni að höfundurinn hafi ekki verið búinn að ákveða hvernig hún átti að enda og svo eiginlega bara ekki nennt þessu lengur. En það er örugglega bara steypa í mér.

Síðan ég bloggaði síðast um bækur er ég búinn að lesa þessa brú, klára Factfullness eftir Hans Rossling, klára eina Gyrðisbók sem ég var lengi með í vinnslu og að lokum er búinn með rúmlega 3 af fjórum skáldsögum Einars Kára í Sturlunga fjórleiknum. Ég er að bögglast í gegnum Skáld, sem mér finnst reyndar síst af þeim. Áður en ég klára hana ætla ég reyndar að lesa bókina hennar Sæunni Kristjáns sem fjallar um krankleika mömmu hennar. Já og svo kláraði ég Simone de Beauvoir sem ég hafði ekki alveg greind til að skilja.

Til að halda sér í formi reynir maður að stunda eitthvað heimasprikl og fara í fjárhúsin en maður er samt eitthvað hálf lufsulegur. Hef ekki hreyft mig neitt úti og étið frekar mikið af óhollustu. Það finn ég alltaf strax á skrokknum. Dagurinn í gær var ein fljótandi rjóma og sykurveisla frá morgni til kvölds. Í dag er ég að reyna að hemja mig með því að éta bara 2 máltíðir og ekkert á milli mála. Ég nefnilega fer oft á beit í kexskúffuan hérna í sveitinni.

Jæja gott í bili

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap