Hlaupaskór

Brooks Ghost 12
Þar sem ég var búinn að ákveða að hlaupa 5 km. í 1. maí hlaupi UFA þá varð ég nú að græja mér einhverja skó. Hef ekki átt hlaupaskó í langan tíma, ef frá eru taldir Luna sandalarnir mínir. Ég ákvað að hverfa aðeins aftur frá minimalistapælingum og fara í hefðbundnari hlaupaskó. Fékk mér Brooks Ghost 12 og er spenntur að vita hvernig hnéin mín þola þetta. Ég var reyndar svekktur að liturinn sem mig langaði í var ekki til, þannig ég tók bara plain svarta.

Nú er bara að fara að skella sér út að hlaupa 3-4 sinnum í viku ef maður verður svo heppinn að halda heilsunni. Það er náttúrulega samt alls óvíst hvort það verði eitthvað 1. maí hlaup en það þýðir ekki láta það trufla sig. Þá daga sem ég fer út að hlaupa mun ég stytta inniprógrammið mitt, en samt taka smá armbeygjur, curl og axlapressu. Já og maga.

Set hér inn prógrammið sem ég bjó til og er búinn að fara eftir síðustu vikuna rúma:

Ps. Er að leggja í hann niður í Innbæ og ætla að leyfa Brynleifi aðeins að hlaupa með mér og halda honum í formi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap