Hlaupadagbók

Þar sem ég er ekki að blogga neitt af viti þessi dægrin, þá datt mér í hug að virkja þennan vettvang sem hlaupadagbók þar sem ég fer yfir æfingu (gær)dagsins.

Hlaup 1

Dagsetning: 25.03.2020

Tegund: Langt rólegt

Leið: Hljóp úr Kringlumýri, niður í Hrafnagilsstræti og Spítalaveg niður Aðalstræti. Hljóp með Brynleifi hringinn í kringum tjörnina í Innbænum (2 km). Þegar ég fór til baka hljóp ég Drottningarbrautina og svo upp Þórunnarstrætið.

Gír: Var í góðum gír og leið vel mest allan tíman. Smá hnjáverkir í lokin. Lungun virkuðu fínt.

Vegalengd: 6 km.

Samtala: 6 km.

Annað: Ótrúlegt að hlaupa um göturnar hérna á Akureyri í þessari Covid þoku. Engin bílaumferð en mjög margir úti að hreyfa sig. Pizzabílar út um allt

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap