Crossfit vika í burðarliðnum

Í gær tók ég í fyrstu alvöru crossfit æfinguna í langan tíma. Æfingin var 2-4-6-8-10-12-10-8-6-4-2 af Burpess, Hang Squat Clean (2x15kg) og Dead lift með 60 kg. Mér leist hrikalega vel á þetta og hugsaði að þetta væri akkúrat eitthvað sem hentaði mér. En ég drullaði alveg upp á bak og kláraði ekki æfinguna. Ég veit ekki hvort ég var bara þreyttur eftir helgina, eða vegna sukkfæðis, en ég allavega ákvað að keyra mig ekki alveg út þar sem ég ætlaði að taka 3 æfingar í viðbót í vikunni.

Eftir æfinguna kíkti ég í sund og þar fann ég fljótt að ég væri alveg loftlaus en mér leið samt vel. Skottaðist heim og át snarl, drakk 2 kaffibolla og kíkti á fréttir. Ég var eitthvað að spá í að mála en hugsaði að það væri bara fínt að fara upp í rúm og lesa. Þegar ég lagðist upp í rúm kíkti ég á klukkuna og þá var hún 19:54!! Las nokkrar blaðsíður og sofnaði svo eins og steinn. Ég er allavega útsofinn í dag.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap