Vælið búið í bili
Þarna var ég rétt byrjaður að bera af neðri hæðinni- núna er stofan næstum full. |
Eftir síðasta vælupistil drullaðist ég upp úr sófanum, dró uppþvottavélina fram, tæmdi af henni vatnið, tengdi hana aftur og gerði eina tilraun í viðbót til að ná henni af stað. Þetta CPR dugði ekki og ég er búinn að dæma dæluna í henni ónýta. Nú er bara spurning hvað það kostar að skipta um dælu, hvort það borgi sig?
Annars hélt ég bara dampi og nú er ég búinn að tæma 3 svefnherbergi og geymsluna og þrífa gólf og veggi. Það munar nú um það. Nú fer að verða minna og minna sem ég get gert án þess að redda mér bíl. Ég þarf að komast í Húsasmiðjuna, fara á gámasvæði, tæma skúrinn og keyra með kassa og léttara dót.
Ég hef ekki farið í ræktina í 3 daga. Crossfit Hamar hefur verið að flytja stöðina sína og eru ekki almennilega búnir að opna. Ekkert rafmagn á fyrstu æfingunni og svo verður vatnið ekki tengt fyrr en á miðvikudaginn. Ég er að spá í hvort ég hvíli bara fram á miðvikudag eða þar til ég er búinn að flytja. Það er allavega mjög langt síðan ég hvíldi í einhverja daga.
Mataræðið er í algeru bulli. Bara bollur, brauð og gotterí út í gegn. Ég verð að reyna að taka mig aðeins á. Ég verð svo helvíti óánægður með mig þegar ég missi mataræðið í vitleysu.
Á morgun er ég að spá í að panta flug til Köben á milli 7. og 19. ágúst. Stefni að því að vera í 7 daga að þvælast um DK eða Skán á hjóli. Ég og Þolli erum ekki alveg búnir að ákveða hvernig við höfum þetta en mig langar mest til að leigja Airbnb íbúð eða bústað einhversstaðar í útjaðri Kaupmannahafnar og ferðast svo þaðan og geta komist heima á kvöldin til að fara í sturtu, hrein föt og elda góðan mat. Jæja þetta verður ákveðið betur síðar.
Ummæli