Uppþvottavéladauði - E6

Gæti verið svolítið gaman að reyna að mála þessa sem "value study".

Ég er búinn að vera ágætlega duglegur í dag og í gærkvöldi við að tæma barnaherbergin og bera kassa og dót upp í stofu. Geymslan niðri er líka að verða tóm. Nú þyrfti ég eiginlega að fara að redda mér bíl svo ég geti fariðnokkrar ferðir og þannig flýtt fyrir mér í næstu viku.

Þetta hefur s.s. allt gengið vel og ég var líka svo helvíti ánægður að hafa komist fyrir þessi stífluvandræði og vera kominn með uppþvottavélina í lag. Ekkert sérstakt til að hafa áhyggjur af nema bara að tæma og þrífa. Eða það hélt ég allavega.

Áðan var ég svo að þrífa í eldhúsinu og fyllti uppþvottavélina- sem ég er búinn að nota í nokkur skipti síðan ég fékk hana úr viðgerð. En nú fer hún s.s. ekki af stað heldur birtist kóði "E6" sem þýðir að hún dælir ekki af sér vatninu. Nú þarf ég væntanlega að draga hana fram, tæma úr henni vatnið, aftengja hana og koma henni í viðgerð aftur.

Ég get alveg viðurkennt að það þyrmir yfir mig út af þessu helvíti. Nú langar mig bara til að leggjast upp í sófa, kveikja á Netflix og sjúga á mér þumalfingurinn. Ég hef tilhneygingu til að láta svona hluti hafa allt of mikil áhrif á mig og draga mig niður. Verða svartsýnn og reikna með hinu versta. Sumum gæti fundist þetta kjánalegt. Þetta er jú bara eitthvað smámál. Er það ekki?

En ég veit það best sjálfur að það þýðir ekki að láta þetta stoppa sig. Ég verð að sætta mig við að þetta mun kosta einhverja peninga- en þar með er það upp talið. Nú verð ég bara að drulla mér upp úr sófanum og halda áfram að gera eitthvað. Bara eitthvað- það er alltaf betra en að gera ekki neitt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap