Tækling
Úr nærumhverfinu. |
Í gær ákvað ég að mála eftir ljósmynd sem ég fann í fórum mínum, eða í tölvunni öllu heldur. Þetta er ein af þessum myndum sem ég tók á leiðinni í búðina eða á einhverjum öðrum þvælingi. Sjálfsagt hef ég tekið hana með það fyrir augum að mála eftir henni síðar meir.
Það sem mig langaði að fanga var sterkt ljós og sól sem skein í gegnum aspirnar við Hrísalund og varpaði löngum vetrarskuggum yfir göngustíginn. Vinstri helmingurinn á myndinni var frekar flókinn- og ég vissi eiginlega ekki hvernig ég myndi tækla þetta. Eins og stundum þegar maður stendur frammi fyrir þannig mynd þá þorði maður varla að byrja. Það var ekkert fólk á myndinni en ég bætti því bara við til að fá smá líf.
Ég byrjaði á því að mála eina mynd í lit og var ekki ánægður með útkomuna þó ég sé núna að taka hana í meiri sátt. Þessvegna ákvað ég að gera aðra útgáfu og reyna að fanga vetrarbirtuna og snjóinn með einum lit. Ég var ánægður með þá mynd þó veran á myndinni sé ekki alveg jafn trúverðug, það er eitthvað í hlutföllunum.
Núna ligg ég upp í sófa með kveikt á enska boltanum og er búinn að úða í mig gulrótaköku og snúðum. Hef lítið annað gert í dag. Fór í sund fyrir hádegi en hef síðan bara étið, lesið og lagt mig. Nú er ég að reyna að haska mér af stað í að mála smá þar sem mig langar til að mála eina óveðursmynd. Birti hana hér ef vel gengur.
Ummæli