Sit í sófanum á meltunni. Át allt of mikið. Þórður kíkti við en er farinn í norðurljósaferð. Í dag tæmdi ég skúrinn úti í garði og þreif hann. Kláraði að ganga frá fötum og er búinn með slatta úr eldhúsinu. Saddur, þreyttur, nokkuð glaður, bjartsýnni en stundum áður.
Fór í crossfit tíma í hádeginu og það var s.s. alveg greinilegt að það er svolítið síðan maður fór síðast. Ætla að fara aftur á föstudaginn. Maður verður að láta sig hafa það þó maður standi í þessum flutningum.
En jæja nú ætla ég að kíkja eina ferð í Kringlumýrina með föt og eldhúsdótt. Skoða mig um, kíkja í bílskúrinn og aðeins skipuleggja þetta ævintýri.

买买
Mǎi mǎi
Ummæli