Loftlaust slytti
Málaði þessa litlu mynd úr Þingvallastræti í gær. |
Það er ýmisslegt búið að ganga á þessa viku. Þegar ég var nýbúinn að koma uppþvottavélinni í gang stíflaðist affallið af húsinu. Affallið af ofnunum komst ekki lengur út og ég þurfti að taka hitann af húsinu. Eftir mikið vesen þurfti ég að hringja á aðstoð og þetta tók rúma 2 daga. Sem betur fer var ekkert alvarlegt að og nú á þetta allt að vera komið í lag. En þetta var mikið stress og bull og núna er ég alveg gjörsamlega búinn á því.
Börnin eru sofnuð og þetta er síðasta nóttin þeirra í Dalsgerði 2a. Á morgun fara í þau í Mývatnssveit með ömmu sinni og afa og ég ætla að nýta helgina og alla næstu viku í að pakka og byrja að þrífa. Tæmi húsið á föstudaginn eftir viku og við mamma ætlum að þrífa á laugardeginum. Ég þarf eiginlega að fara að setjast niður og skipuleggja þetta almenninlega.
Það hafa orðið smá vendingar hjá mér varðandi hjólaferðir í sumar. Ég var að tala við Þolla í gær og við stefnum að því að taka túr í Svíþjóð í ágúst. Í leiðinni ætla ég að fara á veiðar með pabba. Með því að blanda þessu svona saman slepp ég við að fara 2 ferðir út í sumarfríinu. Ég ætla að leggjast yfir landakort fljótlega og henda hér inn einhverjum pælingum. En nú ætla ég að hætta þessu tilgangslausa tuði og fara að leggja mig.
Ummæli