Vetrarskuggar
Langir vetrarskuggar í Dalsgerðinu |
Í gærkvöldi garfaði ég í gömlum myndum og fann mynd úr Dalsgerðinu, sem ég hafði reyndar einhverntíman málað áður. Myndin er tekin á köldum degi og langir vetrarskuggarnir teygja sig yfir götuna. Mig langaði að reyna aftur við þetta en núna bæti fólki á myndina og glæða hana meira lífi. Í þetta skiptið ákvað ég að setja smá gulan í þetta til að ná fram sólinni, en fannst myndin í staðinn kannski verða aðeins of hlý.Það er ekki alveg -15°C á henni.
En myndin er ágæt og það sem meira er, þetta kveikti alveg í mér með að fara að mála meiri snjó og ruðninga. Ég nennti ekkert að dútla mér of mikið við troðinn snjóinn á götunni og ruðningana en ef maður rýnir í myndina þá sér maður að ég var á réttri leið. Nú er bara að leggjast yfir vetrarmyndir frá Stanislav Zolads og finna fleyri skemmtilegar vetrarmyndir frá Akureyri til að mála eftir.
En annars er allt fínt að frétta. Það er verið að flytja Crossfit Hamar og því hefur maður ekkert komist í tíma í meira en viku. En maður er í staðinn búinn að fara í Háskólaræktina til að halda sér við. Ætla að fara í hádeginu í dag. Svo kannski blæðir maður á sig einni ferð í World Class um helgina- hver veit.
Er ennþá á 16:8 en ét hinsvegar óþarflega óhollt. Er frekar að þyngjast en hitt en held að það sé nú kannski líka eitthvað kjöt.
Ummæli