Hringferð

Frá Kaffi kú- 26. október 2018

Þegar ég tók ljósmyndina sem ég málaði þetta eftir, þá voru nákvæmlega 10 ár upp á dag síðan ég fór á tónleika með Helga og Hljóðfæraleikurunum á Græna hattinum og hitti Guðrúnu. Þegar þessi mynd var tekin var hinsvegar orðið alveg ljóst að sambandi okkar mundi senn ljúka. Ég var þarna einn á ferð með Þórði og satt best að segja ekki á góðum stað. Mánuði síðar vorum við Guðrún búin að skrifa upp á skilnað á borði og sæng.

En það var nú ekkert þess vegna sem ég ákvað að mála myndina. Ég mundi eftir þessari ljósmynd og hafði alltaf langað að mála hana, fanga stemmninguna og birtuna. En ég rak augun í dagsetninguna og fannst þetta eitthvað svo táknrænt. Við kynnustm á tónleikum með H&H, ferðumst saman í gegnum lífið í 10 ár og ég slútta þessu aftur á sama punkti. Þegar við kynntumst bjó ég í blokk í Hjallalundinum og þar enda ég nú.

Góðar skáldsögur eru oft með söguþræði sem leiða mann í hring, gott dæmi er Spámennirnir í Botnleysufirði. Hjá mér: Akureyri-Krókurinn-Mývatn-Akureyri.... og nú byrjar annar hringur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap