Þetta mokast eitthvað áfram

Úr Norðurgötunni- gamalt mótíf.

Það er s.s. ekki margt af manni að frétta. Flutningarnir mokast eitthvað áfram og það þýðir lítið að velta sér upp úr því hvað er mikið eftir. Ég er reyndar ekkert sérstaklega vel stemmdur andlega og maður er eitthvað voðalega búinn á því. Þetta tekur á. Ég held að það tengist reyndar bara því að maður er að fara í gegnum fullt af gömlu dóti sem tengist mér og Guðrúnu. Í aðdraganda flutninganna var maður kominn á nokkuð gott ról en nú hefur maður tekið nokkur skref aftur á bak. Það er skrítinn á manni hausinn.

En það er bara að halda áfram skref fyrir skref og muna að þetta tekur senn enda. Ég tók smá skurk þegar ég kom heim úr vinnunni en núna sit ég og horfi á Liverpool vs. Westham. Ég held maður eigi það alveg skilið að slappa aðeins af. Helst langar mig að mála eftir leikinn en veit ekki hvort ég nái að einbeita mér. Málaði reyndar eina mynd í gær sem ég læt fylgja hér með.

Ég fór í Sportver í dag og mátaði Brooks hlaupaskó. Ég er að stefna að því að hlaupa 1. maí hlaupið eins og í fyrra. Þá fór ég alveg óæfður og hljóp á 23+ mínútum. Stefni að því að fara á 21 mínútu næst og þá er eins gott að vera búinn að hlaupa eitthvað áður. Ég fann nefnilega alveg fyrir þessu í fyrra; stífnaði allur upp og varð hálf stirður eftir þetta. Stefni svo á Crossfit tíma í nýju stöðinni á miðvikudaginn. Það þýðir ekki að leggjast í aumingjaskap.

Jæja nú er Westham komið í 1-2 og eins gott að einbeita sér að leiknum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap