Skilnaðarpappírar
Oft hef ég verið misskilinn en þegar ég tékkaði á póstinum áðan fékk ég staðfestingu á því að ég er alveg skilinn. Það heitir víst lögskilnaður á máli embættismanna. Góður maður sagði mér að það væri síðasta höggið í þessu skítaferli sem skilnaður er, en svo færi sólin að rísa að nýju.
Það var skrítið að opna bréfið og tilfinningin er vægast sagt mjög súr. Nú er rúmlega ár liðið frá því ferlið hófst og maður er farinn að trúa því sem aðrir góðir menn (og konur) hafa sagt manni, að þetta taki alveg 2 ár. Það er ekkert annað að gera en að leyfa bara öllum þessum tilfinningum að koma og spá aðeins í þeim.
Að öðru leiti var daguruinn fínn. Gaman í vinnuni og svo labbaði ég í ræktina. Eftir það át ég oumph með grænmeti og rjóma og horfði á Ísland rústa Rússlandi í handbolta. Ég er kominn á 16/8 aftur og ketó. Beilaði á þessum vegan pælingum í bili.
Ætla í ræktina á morgun og á fimmtudag og föstudag. Hvað ég geri um helgina er óráðið.

Ummæli