Olía
Í gærkvöldi ákvað ég að mála- nýta tækifærið á meðan það er einhver neisti. Ég gerði reyndar alls engar rósir og varð hundóánægður með útkomuna. En ég ákvað að láta það ekki draga mig niður. Aldrei að vita nema ég dragi fram málninguna aftur í kvöld og drulli einhverju á blað.
Annars er ég orðinn aftur spenntari fyrir að prufa olíumálningu. Það er aldrei að vita nema að maður eigi eftir að sjá eftir því að hafa ekki prufað það fyrr, hver veit. Það er eiginlega heimskulegt að gefa þessu ekki séns. Eins og að sitja við matarborð sem er hlaðið krásum og éta bara einn rétt. Eða eiga fullt af litríkum kjólum en fara bara í alltaf í brúnu jakkafötin...... ég er að fokka í ykkur.
Ég rakst á þetta myndband hér fyrir ofan og er að spá í hvort ég eigi að prufa þetta? Yfir 5 klukkutímar af kennsluefni til að koma manni af stað. Kostar reyndar 100$, en gæti alveg verið þess virði.
Ummæli