Meira kaffhúsarugl

Nú er ég aftur mættur á Backpackers, eins og í gær. Veðrið hefur breyst töluvert og nú er ekki eins jólalegt og var í gær. Þegar ég gekk héðan út í gær var reyndar byrjað að hlána hér niðri í bæ en eftir því sem ofar dróg á Brekkuna, kólnaði aftur. En svo fór að blása niður Glerárdalinn og það var kominn 7°C hiti og vindur í gærkvöldi heima í Dalsgerði.

Ég fór í Nettó í gær til að kaupa í matinn. Keypti þorskhnakka, blaðlauk og sæta kartöflu. Velti fiskinum upp úr hveiti og steikti á pönnu og setti hann svo aðein inn í ofn með kartöflunum. Át blaðlaukssmjör með þessu. Þetta var fínt. En svo keypti ég reyndar líka rúmlega 2 kg. af skötu til að eiga í frystinum.

Ég vaknaði kl. 08.00 í morgun til að ná tíma í ræktinni kl. 10.00 (ég tími ekki að sleppa morgunkaffinu í bælinu). Ég var drullu þreyttur en þetta hafðist þó allt að lokum. Ég man aldrei eftir að hafa séð eftir því að fara á æfingu- ekki þegar henni lýkur. Ég legg mig bara í dag ef ég verð mjög þreyttur. Í heildina er ég því búinn að vera nokkuð duglegur í ræktinni síðustu vikur og yfir jólin. Enda finn ég mun á mér.

En nú er ég búinn að éta vegan-borgara og er að spá í hvort ég ætti að fara að hjóla heim. Eins gott að Þorsteinn Bachman sé ekki einhversstaðar á ferðinni. Ég ætlaði að byrja að pakka í dag en nú nenni ég því varla. En það er best að taka smá rispu. Svo langar mig að horfa á Silfrið og klára að lesa eina bók. Oooo hvað þetta er erfitt líf.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap