Meira af bókum

Óvinafagnaður Einars Kárasonar. 
Í fyrra reit ég einhver blogg um bóklestur. Ég fór eitthvað að leita að þessu bloggi til að rifja upp hvað ég væri búinn að lesa á árinu. En svo fann ég í morgun eitthvað skjal í Notes- og ég held að það sé ágætis yfirlit hvað ég er búinn að fara í gegnum. Þó það skipti í sjálfu sér engu máli hvað maður les margar bækur, þá virkar það samt svolítið hvetjandi að hafa yfirlit yfir það.

Það sem ég hef lesið á árinu er:
  1. Elsku Drauma mín - Sigríður Halldórsdóttir
  2. Stormfuglar - Einar Kárason
  3. Kambsmálið - Jón Hjartarson
  4. 60 kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason
  5. Hið heilaga orð - Sigríður Hagalín
  6. Sorgarmarsinn - Gyrðir Elíasson
  7. Náðarstund - Hannah Kent
  8. Listamannalaun - Ólafur Gunnarsson
  9. Mátturinn í núinu - Eckhart Tolle
  10. Klopp - Allt í botn - Raphael Honigstein
  11. Korngult hár grá augu - Sjón
  12. Ungfrú Ísland - Auður Ava 
  13. Tíminn og vatnið - Andri Snær Magnason
  14. Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir
  15. Rauður maður/svartur maður - Kim Leine
  16. Kalak - Kim Leine
  17. Factfullness - Hans Rossling
  18. Langbylgja - Gyrðir Elíasson
  19. Skuggaskip - Gyrðir Elíasson
  20. Memories, dreams, reflections - Ævisaga Carl Jung
Þetta er svona það sem ég man eftir (gæti verið að gleyma einhverju) og af þessum bókum þá er ég reyndar að lesa þær 4 síðustu allar á víxl, þetta eru þannig bækur. En ég klára þær fljótlega. Þegar það er búið ætla ég að lesa Óvinafagnaðinn hans Einars Kára (sjá mynd). Sjöhundruð blaðsíður af algerri snilld. Ég átti allar þessar bækur en sendi pabba þær þegar hann fékk hjartaáfallið og þurfti að hafa hægt um sig. Þegar ég sá þær í fallegu "skinnbroti", þá stóðst ég ekki mátið og ætla að renna í gegnum þær aftur. Þetta er eins og Morgan Kane eða Sven Hassel- bara fyrir fullorðna.

En ætla ég að setja mér eitthvað markmið í bóklestri fyrir árið? Já ég ætla að gera það. Í grunninn ætla ég að:
  1. Lesa allavega 24 bækur á árinu - þar af:
  2. Sögu heimspekinnar eftir Skyrbekk
  3. Íslenska þjóðríkið eftir Gunnar Hálfdánarson
  4. Pyrrhos og Kínea - Simone de Beauvoir
Ég ætla sem sagt ekki bara að lesa eitthvað léttmeti heldur ætla ég líka að koma mér í gegnum þessar 3 bækur sem ég hef allar lagt frá mér áður en ég kláraði þær. Fínt að lesa þær í bland við eitthvað annað.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap