Greiðslumat komið í gang!
Teikning af Hjallalundi 3 E. |
Þar sem ég er ekki hjátrúarfullur þá hef ég ekki áhyggjur af því að ég sé að "jinxa", þó ég setji hér inn teikningu af því sem ég vona að sé tilvonandi íbúðin mín. Ég fékk samþykkt kauptilboð í Hjallalund 3 E og nú er greiðslumatið komið í gang. Íbúðin er 2,5 milljónum ódýrari en sú sem ég bauð í síðast, þannig að ég hef vaðið fyrir neðan mig.
Mér finnst íbúðin nokkuð skemmtilega uppsett og ég er ekki með neina sérstaka drauma um að rífa neina veggi eða hræra neitt mikið í þessu. Það sem ég fíla líka við þessa íbúð er að hún er ágætlega farin þó flest sé eflaust upprunalegt, frá 1976. Eldhúsinnréttingin er t.d. geðveik og það verður skandinavísk 70s stemmning hjá mér. Svo hlakka ég líka mikið til að henda upp málningardótinu mínu með öllu tilheyrandi. Ætli ég verði ekki með smá vinnustofu í stofunni.
Annars hefur dagurinn verið fínn. Hjólaði í vinnuna, hjólaði heim að ná í matinn (sem ég gleymdi), hjólaði í vinnuna, hjólaði heim, labbaði á leikskólann og svo dró ég Lóu á snjóþotu í ræktina. Við tókum svo strætó heim. Ég át svo óþarflega mikið af einhverju sem pumpaði blóðsykurinn upp úr öllu valdi í kvöldmatinn og þá var allur vindur úr mér. Ég gat ekki meir, sendi börnin í háttinn snemma og ætli ég fylgi ekki fljótlega á eftir þeim.
Hef ekki ennþá nennt að gera neinar tilraunir með mataræðið. Hallast einna helst að því að maður endi bara lágkolvetna háfitu-fæði. Eitthvað ketóafbrigði- bara ekki með miklu af beikoni, pylsum og rauðu kjöti. Eitthvað aðeins hollara.
Ummæli