Gary Tucker
Mynd eftir Gary Tucker |
Ég datt inn á einhvern Gary Tucker og varð alveg húkkt. Hann er með mikið af góðum myndböndum. Hann notar svipaða tækni og Alvaro Castagnet, þ.e. hann byrjar á því að þekja pappírinn með þynnri litum (wash) og vinnur sig smám saman upp í sterkari liti og highlights. Passar sig að skilja eftir það sem á að vera ljóst, það er það erfiðasta. Þetta er aðferð sem ég hef stundum reynt en alltaf gefist upp áður en ég næ einhverjum tökum á þessu.
Nú hefur mig aðeins langað til að mála bæjarmyndir frá Akureyri með fólki inná og því datt mér í hug hvort ég gæti nýtt þessi myndbönd í að yfirfæra tæknina. Ég hef t.d. reynt að gera bæjarmyndir úr Göngugötunni en alltaf endað með því að fokka því upp. Orðið alltof nákvæmur og skilið eftir hvít ljót göp á milli formanna. Það gerist ekki ef maður er öruggur á að þekja allt í einni atrennu.
Gary Tucker - Paris street scene |
Ummæli