Bullandi ketó
Eins og ég var búinn að segja frá þá byrjaði ég á ketó aftur í gær. Þar að auki byrjaði ég aftur á 16/8, þ.e. ég borða allar mínar máltíðir á milli klukkan 12 á hádegi og átta á kvöldin. Fyrsti dagurinn gekk bara ljómandi vel- svona utan við það, að frá þeim tíma sem ég kom heim úr ræktinni í gær, og þar til ég fór að sofa fór ég á klósettið svona 3-4x á klukkutíma að pissa.
Ástæðan er sú að þegar maður hættir að éta kolvetni gengur mjög á glycogenbirgðirnar í vöðvunum; og glycogen bindur vatn. Ég var s.s. bara að losa mig við fullt af vatni sem var bundið í líkamanum. Þegar ég fór að sofa í gærkvöldi var ég rúmlega kílói léttari en þegar ég vaknaði í gærmorgun- sem er náttúrulega öfugt miðað við hvernig þetta ætti að vera.
Í dag er skítaveður, sem er ágætis tilbreyting hér á Akureyrinni. Ég ætla að berjast á móti storminum á eftir og fara í ræktina. Þórður pikkar mig upp eftir tímann og við förum heim til mín og étum lambabóg. Ætli ég fari ekki svo bara að lesa eftir það. Ætla að reyna að klára bókina eftir Simone de Beauvoir (sem er mjög torskilin á köflum og frekar leiðinleg) og verðlauni mig svo með því að byrja á Óvinafagnaði.
Annars tók ég nokkurn veginn alveg pásu frá bóki. Ég datt í seríur sem heita Fleabag og voru sýndir á BBC. Þetta er sjúklega gott stuff og ég er hálf leiður að vera búinn með þetta.
Ummæli