Afsakið mig
Ég vil byrja á því að biðja mína fjölmörgu aðdáendur nær og fjær (sem skipta milljónum), afsökunar á því hvað ég hef verið óvirkur í skrifum. En ástæðan þess er reyndar bara mjög jákvæð því lífið hefur verið frekar gott og ég verið með hugann við annað.
Ég er að fá jákvæða útkomu úr greiðslumati og húsnæðismál því væntanlega að skýrast. Ég ætti því að fá nýja íbúð afhenda 1. apríl!
Um helgina skellti ég mér að vatnslita með nokkrum listamönnum hér í bæ og það var ótrúlega inspírerandi og gaman. Kynntist nýju fólki og átti frábæran dag. Ég skellti mér svo í bæinn um kvöldið með liðinu og Þórður kíkti með okkur.
Á miðvikudaginn síðasta skellti ég mér á fund um umhverfisvænar samgöngur. Það var ágætlega mætt og við ætlum að halda dampi og hittast fljótlega aftur. Við munum krifja Samgöngustefnu Akureyrar á næsta fundi og senda fulltrúa frá okkur á fund með bæjarfulltrúum. Það er alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera.

Ummæli