Jólastússdagurinn mikli

Það er óhætt að segja að allt sé komið á bólakaf hérna á Akureyri.

Við erum búin standa í stórræðum í dag, ég og börnin. Eftir letilega byrjun á deginu með sjónvarpsglápi, kaffidrykkju og pizza og snakkáti, þá drifum við okkur í bæinn. Við byrjuðum að labba niður í bæ og ætluðum að kaupa fullt af jólagjöfum. Þar náði jólastressið mér loksins og á endanum flúði ég bæinn með heldur færri gjafir en ég hafði stefnt að því að kaupa.

Næst löbbuðum við á Glerártorg þar sem við ætluðum að gera gott mót. Þar var stappa af fólki og ég fann ekki neitt sem mér leist á. En við komumst þó í andlitsmálningu og hittum jólasvein og eitthvað skemmtilegt. Reyndar hittum við líka Hurðaskelli í Borgarbíó þegar við rákum þar inn nefið og hann gaf okkur Skittles. Síðan skelltum við okkur í Bakaríið við brúnna og fengum okkur hressingu. Eftir það fannst mér við eiga skilið að taka Taxa heim.

Börnin fengur sér svo áhorfspásu á meðan ég gekk í búðina og skrapp svo aðeins niður í vinnu. Síðan skellti ég þeim í bað og þau léku sér á meðan ég kláraði að horfa á Liverpool spila úrslitaleikinn á HM félagsliða. Til hamingju með það Púllarar. Svo átum við hangikjöt.

Deginum slúttuðum við í mega- innpökkunar og föndur brjálæði. Það voru málaðar myndir og búið til mikið skraut. Síðan las ég fyrir þau og þau voru ekki lengi að sofna. Í fyrramálið eiga þau eftir að mála allavega 2 myndir í viðbót og pakka. Mamma þeirra kemur svo og nær í þau um hádegi og þá þarf ég að reyna að kaupa það sem eftir er af gjöfum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap