Drullutíð
Var að kíkja á veðurspánna fyrir næstu 2 daga og það er óhætt að segja að útlitið sé ekkert allt of bjart. Ég var búinn að lofa Guðrúnu að sækja börnin í dag (mánudag) og hafa þau eina nótt í viðbót. Guðrún ætlaði svo að fljúga norður á morgun og taka við þeim. En eins og spáin lítur út núna er ekki séns að það verði flogið á morgun og sennilega ekki á miðvikudaginn heldur. Ef Guðrún kemst ekki heim í kvöld verð ég sennilega með börnin fram á fimmtudag.
Það voru s.s. engin stórkostleg plön hjá mér þessa vikuna. Bara þetta sama og venjulega. Fara í ræktina, kíkja á bókasafn og kannski fara eitthvað að huga að jólagjöfum. En svo er ég að fara suður á fimmtudag og verð þar í 2 daga. Það verður næs eins og alltaf.
Kveðja, Bjarni

Ummæli