Togstreita

Eftir að hafa tekið heilt ár þar sem ég sleppti því algerlega að kaupa föt, þá hefur aðeins sigið á ógæfuhliðina aftur, ef svo má að orði komast. Ég er búinn að vera aðeins að bæta í fataskápinn og keypti mér t.d. tvennar buxur í gær. Hluti af ástæðunni er reyndar sú að margar buxur sem ég á eru orðnar allt of víðar á mig og eru því bæðar ljótar og óþægilegar. Ég þoli ekki að hafa þetta hangandi niður á miðjan rass og flaxandi utan á mér.

Önnur ástæða er einfaldlega sú að mig langar í töff föt. Það er einhver tilfinning sem ég hef ekki orðið var við lengi. Mig "vantar" t.d. eitthvað í sparifatadeildina svo ég líti ekki út eins og niðursetningur þegar ég fer í leikhús eða á jólahlaðborð. Ég er því að spá í að blæða í sparifatajakka í JMJ fyrir helgina.

En það fylgir þessu einhver togstreita þar sem togast á umhverfisvitun og peningamál. Innst inni veit ég líka að þetta er kannski svolítið hégómalegt, því það hvernig maður klæðir sig breytir ekki því hver maður er... en FUCK IT!. ef maður hefur gaman af og líður betur þegar maður er fínn í tauinu, á maður þá ekki bara að láta það eftir sér? Bara að gera það skynsamlega og ekki missa sig.

Þá er ég búinn að réttlæta fyrir mér jakkakaupin.... takk fyrir mig.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap