Gratín og saltfiskur
Af mér er ekkert að frétta. Lífið er saltfiskur, en saltfiskur er góður. Vinna, rækt, borða, fréttir, kaffisopi og lestur. Dag eftir dag. Ætla reyndar kannski að gera mér dagamun og kíkja eitthvað út á lífið með Þórðinum um helgina, verði hann ekki að láta vinnuna trufla sig.
Var að horfa á veðurspána og sýnist að nú verði ekki umflúið lengur að setja vetrardekkin undir hjólið. Það verður frost í nótt og götur eru blautar. Ekki á það hættandi að fara að fljúga á hausinn og drepa sig. Og framtíðarspáin er köld.
Ég er með gamla Golf í geymslu hjá mér og hef verið að nota hann aðeins til að fara í ræktina. Hann er á sumardekkjum þannig ég veit ekki hvort ég geti notað hann mikið á næstunni. Ég er samt búinn að lofa Brynleifi að fara með honum á morgun að kaupa Playstation og vona því að sólin verði búin að bræða mesta vesenið í burtu.
Að lokum, ég át gæs í kvöld. Eldaði bringur með 3x4 mínútna aðferð og það heppnaðist alveg hrikalega vel. Gerði villisveppasósu og hafði með Þykkvabæjar gratín. Skál í botn.

Ummæli