Góð helgi að baki
Dagbjört og Brynleifur hlaupa á Garðssandi |
Lífið: Nú er frábær helgi að baki með fjölskyldunni á Hofsósi. Þetta var eiginlega ein löng afmælisveisla fyrir Brynleif sem var baðaður í sviðsljósi og fékk fullt af gjöfum. Eins og lög gera ráð fyrir var að sjálfsögðu líka frábær matur og mikið af ís. Drengurinn fór líka alsæll í skólann í morgun í nýjum skóm og ætlar að kaupa sér Playstation 4 tölvu í næstu viku.
Bækur: Ég fór á bókasafnið áðan, skilaði bókum og tók nýjar. Kalak eftir Kim Leine var frábær en Sandmaðurinn eftir Lars Kepler var rosalega slæm. Ég held bara að ég sé ekki týpan í að lesa spennusögur. Mér fannst þetta svo hrikalega ótrúverðugt og tilgerðarlegt á köflum. Ég ætlaði að taka Ungfrú Ísland eftir Auði Övu en hún var úti. Leitaði því næst uppi Murakami og langaði til að gefa honum séns. Þegar ég var svo að fara að skanna bókina rak ég augun í hnausþykka bók eftir Kim Leine sem heitir Rauður/maður Svartur/maður, og er nokkurskonar framhald af Spámönnunum í Botnleysufirði. Ég henti því Murakami upp í hillu og tók Leine. Get ekki beðið eftir að dýfa mér í hana, enda einn af mínum uppáhalds höfundum. Síðan tók ég Einar Áskel, Snuðru og Tuðru og Kaftein Ofurbrók, sem mér finnst með því betra sem ég hef lesið fyrir þau. Ekki verra þegar maður hlær sjálfur þegar maður les fyrir börnin.
Ræktin og hjólið: Fór 4 sinnum í ræktina í síðustu viku og stefni að því að gera það sama í þessari viku. Tók helvíti góða æfingu áðan og hlakka til að sjá hvað þeir bjóða uppá á morgun. Ég er eiginlega dottinn úr hjólastuði og stunda bara samgönguhjólreiðar þessa dagana. Spáin er reyndar ekki slæm fyrir vikuna en mér finnst ólíklegt að ég fari nokkuð á racer-num.
Matur: Ég er búinn að vera í næstum 3 vikna algeru bulli með matinn. Í dag snéri ég þó við blaðinu og fastaði til kl. 13.15. Síðan át ég salat. Eftir ræktina mallaði ég mér svo karry-rétt með baunum, grænmeti og oumph- sem ég hef aldrei prufað áður. Það var bara helvíti gott.
Ummæli