Barnavikan mikla á enda.

Nú er ég búinn að vera með börnin hjá mér í 10 daga og við erum búin að bralla eitt og annað. Guðrún skrapp til Spánar með vinkonum sínum en kemur aftur til baka á morgun. Ég fæ því 5 daga "alone time" áður en ég tek við þeim aftur. Það verður notalegt þó maður sé nú alltaf farinn að sakna þessara greya eftir 1-2 daga.

Annars er maður aftur farinn að skipuleggja hjólaævintýri næsta sumars. Er búinn að vera í sambandi við Þolla og við erum að skoða Pólland. Planið núna er að byrja í Gdansk, hjóla svo niður allt Pólland og enda í Vín eða Prag. Maður verður svo bara að sjá til hvað Þorvaldur nær að taka mikinn hluta af þessu með mér. Hlakka mikið til.

Það er búið að ganga ágætlega í ræktinni og ég er ekki frá því að ég sé aðeins skárri í öxlunum. Maður er að ná 4 æfingum á viku og svo gengur maður allra sinna ferða, svona allavega eftir að það fór að snjóa. Það er reyndar asahláka núna þannig ætli maður dusti ekki rykið af hjólinu á morgun.

Eins og veiðimenn vita þá byrjar rjúpnaveiðitímabilið á föstudaginn. Ég verð að vinna fyrsta daginn en svo getur verið að við Þórður kíkjum eitthvað á laugardaginn. Svo reikna ég með að við kíkjum á einhverja listasýningu og kannski eitthvað út á lífið. Veiðar, menning og góður matur. Gæti ekki verið betra.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap