Afmæli frumburðarins
Brynleifur listamaður að störfum |
Ég er búinn að vera að undirbúa pakka og gjafir. Síðan verða amerískar pönnukökur á sínum stað kl. 07.00 í fyrramálið, beikon og appelsínudjús. Guðrún ælar að koma og við ætlum að vekja drenginn í sameiningu með pökkum og knúsi eins og við höfum alltaf gert. Ég gef honum pening (hann er að safna sér fyrir Playstation 4) og Dagbjört Lóa ætlar að gefa honum Nerf byssu. Það ótrúlega er að hún er ekki einu sinni búinn að kjafta í hann hvað hann á að fá.
Seinnipartinn á morgun leggjum við (ég og börnin) af stað í Hofsós þar sem við ætlum að eyða helginni með mömmu, Agli, Halldóru og Helgu. Það er mikil spenna þó Brynleifi finnist reyndar ekki gott að ekkert sjónvarp sé í húsinu sem við verðum í. Það er nefnilega landsleikur á morgun; Ísland vs. Frakkland.
Ummæli